12.11.26 - 11:20
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá PlovdivLandsliðið mætt í eina elstu borg Evrópu

Frá miðbænum í Plovdiv, þar sem finna má merkar minjar.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Íslenska landsliðið er mætt til Búlgaríu, nánar tiltekið til Plovdiv þar sem leikurinn gegn heimamönnum verður á föstudagskvöld.
Plovdiv er næststærsta borg Búlgaríu og er ein elsta borg Evrópu. Upphaf hennar má rekja til 4.000 fyrir Krists burð. Í Búlgaríu er oft talað um hana sem 'borg hinna sjö hæða'.Plovdiv er nokkuð falleg borg við fyrstu kynni og hér má sjá ýmsar minjar frá fornöld.

TENGT EFNI
Hvernig verður byrjunarliðið í Búlgaríu?
Landsliðið flaug í gær frá Alicante þar sem fyrstu dagar undirbúningsins fyrir leikinn fóru fram. Ferðalagið gekk vel og í dag mun liðið æfa á keppnisvellinum auk þess sem Arnar Gunnlaugsson og Orri Steinn Óskarsson munu sitja fyrir svörum á fréttamannafundi.
Hristo Botev leikvangurinn í Plovdiv verður ansi tómlegur á morgun. Hann tekur tæplega 19 þúsund áhorfendur en búlgarskur fótbolti er í djúpum dal og mætingin á heimaleiki búlgarska landsliðsins hefur verið sorglega lítil.
Búlgarar voru arfadaprir á Laugardalsvelli í síðasta glugga, þar sem Ísland vann 3-0. En þeir sýndu mun betri leik gegn Lúxemborg. Landslið þjóðarinnar er í mikilli lægð en bráðabirgðaþjálfairnn Atanas Ribarski, þjálfari U19-landsliðsins, er enn með stjórnartaumana og klárar þessa riðlakeppni.
Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á morgun en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Eftsa lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.