Fotbolti.net
12.12.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Sverrir Sverrisson í Breiðablik. (Staðfest)

Sverrir Sverrisson í Breiðablik.  (Staðfest)
Canon

Mynd: Merki

Miðjumaðurinn Sverrir Sverrisson hefur gengið til liðs við Breiðablik og skrifað undir tveggja ára samning við liðið en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Sverrir sem verður 34 ára á gamlársdag lýsti því reyndar yfir að hann væri hættur síðastliðið sumar en það er hægara sagt en gert að hætta í boltanum, spyrjið bara Guðna Bergs. Sverrir spilaði fjórtán leiki með Fylki í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði tvö mörk. Hann hefur leikið með mörgum liðum og má þar nefna Malmö í Svíþjóð, Tindastóli, Leiftri, ÍBV og nú síðast Fylki.
Bjarni Jóhannsson þjálfari Blika þekkir Sverri vel enda hefur hann þjálfað hann til dæmis hjá Fylki.

Svo er spurningin hvort að Eyjólfur fylgi bróður sínum í Kópavoginn en Bjarni Jó ætti að geta rætt það yfir Meistaradeildinni á Sýn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.