Fotbolti.net
13.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Dong til Manchester United (Staðfest)

Dong til Manchester United  (Staðfest)
Canon
Manchester United hefur gengið frá kaupum á kínverska sóknarmanninum Dong Fangzhou frá Dhalian Shide. Dong sem er 18 ára uppfyllir ekki skilyrði til að fá atvinnuleyfi í Englandi svo að hann mun fara fyrst um sinn til belgíska liðsins Royal Antwerp sem er vinafélag Man Utd. Til að fá atvinnuleyfi í Englandi þarf Dong annaðhvort að fá sér belgískt vegabréf eða leika 75 % af landsleikjum Kínverja á næstu tveimur árum.
Kaupverðið á kappanum er 500 þúsund pund en það getur hækkað upp í allt að 3,5 milljónir punda verði Dong fastamaður í liði Englandsmeistaranna. Dong fór ásamt mörgum Kínverjum til reynslu hjá liðum í Englandi í ágúst síðastliðinn og náði Manchester United að krækja í hann en fleiri stórlið í Evrópu eins og Real Madrid og Inter Milan voru einnig á eftir kappanum.

Í kaupsamningi Man Utd á Dong við Dhalian Shide þá munu tveir eða þrír þjálfarar enska liðsins fara til Kína og þjálfa hjá Dhalian Shide til að byggja liðið upp.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.