13.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Jason Roberts til Wigan (Staðfest)




Wigan hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Jason Roberts frá WBA. Hinn 25 ára Roberts hafnaði því að fara til Wigan í ágúst síðastliðnum og er hann búinn að vera í láni hjá úrvalsdeildarliðið Portsmouth á tímabilinu. Nú hefur hann hinsvegar gengið til liðs við Wigan sem borgar WBA 2.milljónir punda fyrir Roberts og er það félagsmet hjá Wigan.
