Amorim hleypir Mainoo ekki burt - Tottenham vill Van Hecke og Thiago - Gæti Xavi tekið við Tottenham?
   mið 13. janúar 2021 19:44
Aksentije Milisic
England: Phil Foden afgreiddi Brighton
Manchester City 1 - 0 Brighton
1-0 Phil Foden ('44 )
1-0 Raheem Sterling ('90 , Misnotað víti)

Manchester City og Brighton áttust við á Etihad vellinum í Manchester í kvöld.

Heimamenn í City stjórnuðu leiknum eins og búast mátti við og voru miklu meira með knöttinn. Liðið átti nokkur færi en það var síðan undir lok fyrri hálfleiks eða á 44. mínútu sem markið kom.

Phil Foden skoraði þá með hægri fótar skoti eftir undirbúning frá fyrirliðanum Kevin De Bruyne. Gott skot hjá Foden sem markvörður gestanna átti ekki möguleika í.

City sótti áfram í síðari hálfleiknum en gestirnir vörðust með kjafti og klóm og reyndu síðan að sækja á skyndisóknum sem gekk brösulega.

Bernardo Silva átti hörkuskot í stöngina um miðjan síðari hálfleik en það var síðan í uppbótartíma sem markvörður gestanna, Robert Sanchez, braut á Kevin De Bruyne og vítaspyrna dæmd.

Raheem Sterling fór á punktinn en spyrnan hans var skelfileg og fór vel yfir markið.

Brighton gerði allt sem það gat til þess að jafna leikinn í uppbótartímanum en allt kom fyrir ekki og góður sigur hjá Pep Guardiola og hans mönnum staðreynd.

Manchester City er komið í þriðja sæti deildarinnar á meðan Brighton er í því 17.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 16 11 3 2 30 10 +20 36
2 Man City 16 11 1 4 38 16 +22 34
3 Aston Villa 16 10 3 3 25 17 +8 33
4 Chelsea 16 8 4 4 27 15 +12 28
5 Crystal Palace 16 7 5 4 20 15 +5 26
6 Liverpool 16 8 2 6 26 24 +2 26
7 Sunderland 16 7 5 4 19 17 +2 26
8 Man Utd 15 7 4 4 26 22 +4 25
9 Everton 16 7 3 6 18 19 -1 24
10 Brighton 16 6 5 5 25 23 +2 23
11 Tottenham 16 6 4 6 25 21 +4 22
12 Newcastle 16 6 4 6 21 20 +1 22
13 Fulham 16 6 2 8 23 26 -3 20
14 Brentford 16 6 2 8 22 25 -3 20
15 Bournemouth 15 5 5 5 21 24 -3 20
16 Nott. Forest 16 5 3 8 17 25 -8 18
17 Leeds 16 4 4 8 20 30 -10 16
18 West Ham 16 3 4 9 19 32 -13 13
19 Burnley 16 3 1 12 18 33 -15 10
20 Wolves 16 0 2 14 9 35 -26 2
Athugasemdir
banner