Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. febrúar 2021 06:00
Fótbolti.net
Hemmi Hreiðars og endurkoma Lalla á X977 í dag
Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Hreiðarsson er gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net sem er á X977 í dag milli 12 og 14. Þátturinn er á dagskrá alla laugardaga.

Hermann er þjálfari Þróttar í Vogum en á leikmannaferlinum spilaði hann fyrir fimm úrvalsdeildarlið á Englandi og spilaði 89 landsleiki.

Rætt verður við Hemma um nútíðina, fortíðina og framtíðina!

Í þættinum verður einnig farið yfir fréttir vikunnar og Magnús Gylfason, formaður landsliðsnefndar KSÍ, ræðir um nýja þjálfarateymi Íslands og verkefnin framundan. Lars Lagerback er kominn í teymið hjá Arnari Þór Viðarssyni.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner
banner
banner