Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 13. febrúar 2021 18:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mourinho trylltist rétt fyrir hálfleik - Kastaði í tvígang frá sér
Mynd: Getty Images
„Jose Mourinho trylltist rétt í þessu," skrifaði Simon Stone í textalýsingu BBC frá leik Manchester City og Tottenham, Mourinho er stjóri Tottenham.

„Í fyrsta lagi hélt hann að sitt lið ætti að fá aukaspyrnu, sem það svo fékk ekki, og svo fékk liðið hans á sig aukaspyrnu."

Staðan er 1-0 í hálfleik, Rodri skoraði eina mark leiksins til þessa úr vítaspyrnu á 23. mínútu.

„Mourinho var með eitthvað í höndinni og kastaði því inn á völlinn í pirringi áður en fjórði dómarinn Craig Pawson bað hann um að róa sig."

„Hann fór svo inn á völlinn og tók upp það sem hann kastaði inn á, og kastaði því svo frá sér aftur, núna afturfyrir sig,"
bætti Stone við.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner