Fotbolti.net
13.04.21 - 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Muller: Vonbrigðin eru mikil

Muller: Vonbrigðin eru mikil
Canon

Mynd: Getty Images

„Það er mjög svekkjandi að við vorum slegnir út þrátt fyrir sigur í París," sagði Thomas Muller, leikmaður Bayern Munchen, eftir 0-1 útisigur í París.

Sigurinn dugði ekki þar sem PSG vann fyrri leikinn 2-3 í Munchen og fer því áfram á útivallarmörkum skoruðum.
„Við gerðum okkur engan greiða með úrslitunum í fyrri leiknum." PSG komst yfir en staðan var 2-2 þar til Kylian Mbappe skoraði sigurmarkið um miðbik seinni hálfleiks.

„Vonbrigðin eru mikil en virðing á París - hvernig þeir sóttu á okkur var ótrúlegt," sagði Muller að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.