Ugarte efstur á óskalista Newcastle - Skotmark Liverpool og Chelsea kostar 60 milljónir - West Ham og Tottenham vilja miðjumann Barcelona
   mán 13. apríl 2026 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Barton orðinn fyrirliði í fangelsisliðinu
Joey Barton.
Joey Barton.
Mynd: EPA
Joey Barton hefur verið að léttast og jafnframt tekið að sér fyrirliðahlutverk í fangelsisliðinu samkvæmt meðstjórnenda hlaðvarps hans, en Barton bíður nú réttarhalda.

Barton hefur verið í gæsluvarðhaldi í tæpan mánuð núna eftir að hann var handtekinn grunaður um líkamsárás nálægt vinsælum golfklúbbi í Liverpool.

Barton, sem er 43 ára, er ákærður fyrir líkamsárásina sem beindist að fyrrum fótboltaþjálfaranum Kevin Lynch.

Þeir sem stjórna hlaðvarpi Barton með honum segja hann vera að gera góða hluti í fangelsinu en réttarhöld yfir honum eiga að hefjast í september.

Barton lék meðal annars fyrir Manchester City, Newcastle og Marseille á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta og spilaði einn A-landsleik fyrir England.

Hann gerðist svo aðalþjálfari hjá Fleetwood Town og Bristol Rovers eftir að hafa lagt skóna á hilluna en hefur að undanförnu lagt meiri einbeitingu í hlaðvarpsþætti sína og að úthúða fólk á internetinu.
Slapp
banner
banner