Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 23:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu mörkin: Inter fagnaði tíunda bikarmeistaratitlinum
Mynd: EPA
Lazio 0 - 2 Inter
0-1 Adam Marusic ('14 , sjálfsmark)
0-2 Lautaro Martinez ('35 )

Inter hefur þegar tryggt sér ítalska deildartitilinn og liðið bætti öðrum titli í safnið í kvöld þegar Inteer mætti Lazio í úrslitum ítalska bikarsins.

Inter var með öll völd á vellinum í fyrri hálfleik en liðið komst yfir eftir um stundafjórðung þegar Adam Marusic varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net.

Lautaro Martinez bætti öðru markinu við tíu mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks. Denzel Dumfries vann boltann við vítateig Lazio og sendi á Martinez sem skoraði á opið markið.

Lazio sótti í sig veðrið í seinni hálfleik en mörkin urðu ekki fleiri og Inter fagnaði bikarmeistaratitlinum í tíunda sinn.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner
banner
banner