Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 13. júní 2022 13:00
Elvar Geir Magnússon
Foden mættur aftur til æfinga - Möguleg eftirköst skoðuð
Foden á landsliðsæfingu í dag.
Foden á landsliðsæfingu í dag.
Mynd: Getty Images
Phil Foden, leikmaður Manchester City, var skælbrosandi á landsliðsæfingu Englands í morgun en hann er búinn að losa sig við Covid og mættur aftur inn í hópinn.

England fær Ungverjaland í heimsókn í Þjóðadeildinni á morgun en leikurinn fer fram á Molineux vellinum.

England er á botni riðils síns með tvö stig eftir þrjá leiki en liðið tapaði óvænt fyrir Ungverjum í Búdapest á dögunum.

„Hann er mættur aftur til æfinga en það þarf að skoða hvaða áhrif þessi veikindi hafa haft á hann áður en ákvörðun verður tekin," sagði Gareth Southgate landsliðsþjálfari.

Allir leikmenn í enska hópnum tóku þátt í æfingu dagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner