13.07.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Dario Hubner til Ancona. (Staðfest)
Dario Hubner sem var með markahærri mönnum í Serie A fyrir 2 árum er genginn til liðs við nýliða Ancona í Serie A. Hubner kemur á frjálsri sölu frá Piacenza en þeir féllu niður í Serie B. Ancona hefur einnig fengið varnarmanninn Fabio Bilica frá Palermo.
