Agla María: Var ekkert að pæla í þessu í janúar
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

„Ég er mjög spennt. Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt,\" sagði Agla María Albertsdóttir leikmaður Stjörnunnar og íslenska landsliðsins daginn fyrir brottför á EM í Hollandi.
Agla María segir að það hafi lítið komið sér á óvart í undirbúningnum fyrir fyrsta stórmótið sitt. Æfingarnar væru hefðbundnar og fyrir venjulegan landsleik.

„Þetta er framhald af síðasta verkefni sem við vorum í, þannig það hefur lítið komið mér á óvart. Það styttist í fyrsta leik en við tökum einn dag fyrir í einu og ég reyni að gera mitt besta á hverri æfingu,\" sagði Agla María en Ísland mætir Frakklandi í fyrsta leik liðsins á þriðjudaginn næstkomandi.
„Við förum yfir Frakkana þegar við eru komin út. Við erum aðallega að einblína á okkur núna. Við höfum verið að fara yfir föst leikatriði og uppspilinu hjá okkur síðustu daga.
Agla María er sú yngsta í landsliðshópnum. Hún viðurkennir að fyrir hálfu ári hafi hún haft litlar sem engar vonir um það að fara með liðinu út á EM. Hlutirnir hafi þó breyst hratt.
„Þetta gat farið á báða vegu. En ég er mjög ánægð með að vera í hópnum. Þegar liðið tryggði sér á EM hafði ég enga von um það að ég yrði í lokahópnum. Í janúar voru einhverjar æfingar og ég var ekki einu sinni að pæla í þessu þá. Þetta gerðist allt mjög hratt.\"
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.