Fotbolti.net
22.07.26 - 15:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ari Leifsson: Ég var með samkomulag við Val

Auglýsing
Það sem heillaði mest er hópurinn, mér finnst vera rosaleg gæði hérna og mjög mikil tækifæri til að sýna meira og ná einhverjum árangri

Það sem heillaði mest er hópurinn, mér finnst vera rosaleg gæði hérna og mjög mikil tækifæri til að sýna meira og ná einhverjum árangri

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er virkilega góð tilfinning að vera kominn í Stjörnuna, búið að taka virkilega vel á móti mér og ég er mjög ánægður að vera kominn hingað."

Ari Leifsson var í síðustu viku kynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar, hann er kominn heim til Íslands eftir sex ár sem atvinnumaður erlendis. Ari er 28 ára miðvörður sem uppalinn er hjá Fylki en lék með Strömsgodset í Noregi og Kolding í Danmörku á tíma sínum erlendis.

Hann ræddi við Fótbolta.net í dag en framundan hjá Stjörnunni er einvígi gegn finnska liðinu Ilves í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Fyrri leikur liðanna fer fram á Samsungvellinum á morgun og leikurinn hefst 19:15.
„Þetta yrði minn fyrsti Evrópuleikur. Ég held þetta sé svipað og þessi lið í Danmörku, Noregi og hérna heima. Mér finnst liðin hér heima hafa klárlega tekið skref upp á við hvað varðar aðstöðu, þjálfun, mannskap og allt þetta sem er mjög gott að sjá. Ég held að við eigum fullt af möguleikum á móti þessu liði á morgun," segir Ari.

Sjáðu viðtalið í heild sinni í spilaranum efst

Af hverju er Ari kominn til Íslands?

„Ég glímdi við svolítið af meiðslum í fyrra, var svolítið óheppinn og missti af meirihluta af tímabilinu. Ég átti lítið eftir af samningi og þegar ég kom til baka þá var ljóst að ég var ekki maður þjálfarans. Svo var þjálfarinn látinn fara og ég byrjaði að spila aftur. Ég er kominn með fjölskyldu og með lausan samning, þurfti að skoða hvað væri í boði. Við fjölskyldum tókum ákvörðun út frá því að koma heim. Það var áhugi erlendis frá á sambærilegu 'leveli', en okkur fannst það heila meira að fara til Íslands."

„Við skoðuðum möguleikann að koma heim áður en Besta deildin byrjaði, en Kolding vildi ekki hleypa mér burt, ég kláraði því tímabilið og kom heim núna í staðinn."


Í maí var sagt frá því hér á Fótbolti.net að Ari yrði leikmaður Vals þegar félagaskiptagluggi myndi opna.

„Staðan var þannig að við vorum með samkomulag, svo breyttust aðstæður og forsendur. Þá þurfti að ræða saman og fara yfir það. Þetta varð svo niðurstaðan. Ég persónulega ræddi við Gareth (Owen, tæknilegan ráðgjafa Vals)."

Hermann Hreiðarsson var þjálfari Vals þegar Ari náði samkomulagi við félagið en hann var látinn fara í lok júní.

Var þetta sameiginlega niðurstaða ykkar, eða vildir þú ekki fara í Val?

„Það er pínu erfitt að segja til um það að svo stöddu, þetta var flókin staða með annan þjálfara að koma inn sem kemur ekki fyrr en í haust (Halldór Árnason), pínu snúin staða."

Hvernig er að vera í þessari stöðu að samkomulag detti upp fyrir sig?

„Það er svolítið skrítin tilfinning sem ég hef ekki upplifað áður."

Á 433 var sagt frá því að Halldór Árnason hefði ekki viljað fá Ara til Vals. Er það eitthvað sem þú skynjaðir?

„Nei og það voru heldur ekki skilaboðin sem ég fékk. Ég veit ekki hvað er til í því, en eftir því sem ég best veit þá var það ekki staðan."

Eftir að ljóst varð að þú færir ekki í Val, var Stjarnan þá fyrsti kostur?

„Ég hafði ekkert verið í viðræðum við nein leið af því ég var með samkomulag við Val. Eftir að það dettur út þá fór ég að ræða við fleiri félög, fór á fleiri fundi. Mér leist bara rosalega vel á Stjörnuna, félagið og verkefnið. Það er búið að taka ótrúlega vel á móti mér þannig ég er mjög ánægður."

„Það sem heillaði mest er hópurinn, mér finnst vera rosaleg gæði hérna og mjög mikil tækifæri til að sýna meira og ná einhverjum árangri. Við erum í smá millibilsástandi, höfum ekki verið góðir, og eigum helling inni. Það í bland við hvernig Stjarnan sá mig átti vel saman."


Ari segist sáttur með árin erlendis.

„Já, en að sama skapi vill maður alltaf meira. Ég held það séu mjög fáir sem geta sagst vera saddir. Ég átti mjög góða tíma, og auðvitað átti ég erfiða tíma líka. Þannig er líka bara lífið sjálft. Þetta er búið að líða ógeðslega hratt, mér leið pínu eins og ég hefði aldrei farið, en samt eru þetta sex og hálft ár. Það var sérstaklega gaman í Noregi," segir Ari.
Ari Leifsson: Ég var með samkomulag við Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Leifsson: Ég var með samkomulag við Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kominn heim eftir sex og hálft ár sem atvinnumaður erlendis.

Kominn heim eftir sex og hálft ár sem atvinnumaður erlendis.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Leifsson: Ég var með samkomulag við Val
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari á að baki fjóra A-landsleiki og lék þar á undan 20 leiki með U21 landsliðinu.

Ari á að baki fjóra A-landsleiki og lék þar á undan 20 leiki með U21 landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.