Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. júlí 2021 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Staðfestir áhuga Juventus á Jorginho
Jorginho var stórgóður á Evrópumótinu.
Jorginho var stórgóður á Evrópumótinu.
Mynd: EPA
Umboðsmaður ítalska miðjumannsins Jorginho segir að Juventus hafi áhuga á skjólstæðingi sínum.

Jorginho er leikmaður Chelsea og ítalska landsliðsins. Hann hefur átt mjög gott - það er ekki annað hægt að segja. Hann vann Meistaradeildina með Chelsea og var stórgóður á Evrópumótinu er Ítalía fór alla leið.

„Ég get staðfest það," sagði Joao Santos, umboðsmaður hans við Calciomercato spurður út í áhuga Juventus á Jorginho.

Hann segir jafnframt að önnur félög hafi áhuga en búist er við því að hann verði áfram í Chelsea.

Jorginho er með samning við Chelsea út 2023. „Eins og staðan er núna, þá mun Jorginho spila hjá Chelsea á næstu leiktíð."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner