Fotbolti.net
13.07.26 - 22:12
Gylfi Már Þórðarson

Haraldur Freyr: Við skorum annað mark sem er löglegt

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson - þjálfari Keflavíkur

Haraldur Freyr Guðmundsson - þjálfari Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik sigraði Keflavík á Eirarvellinum í Kópavogi í kvöld. Lokatölur voru 2-1 og skoraði Kristinn Jónsson sigurmark Blika á lokamínútu venjulegs leiktíma.
Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur var til viðtals að leik loknum í kvöld.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Keflavík
"Gríðarlega svekkjandi tap. Mér fannst við verðskulda meira út úr þessum leik, allavega eitt stig. Við sköpum okkur fín færi, góðar stöður, við förum svolítið illa með sumar stöður sem við komumst í á móti hörkugóðu Breiðabliksliði hér á Kópavogsvelli. Því miður var dæmt af okkur rangstöðumark sem hefði átt að standa, það var aldrei rangstaða. Sömuleiðis með markið sem Eiður skorar undir lokin, mér fannst það ekki vera brot."

"Það vantaði klárlega að geta haldið búrinu hreinu eða skora fleiri mörk. Eins og ég sagði áðan þá skorum við annað mark sem er löglegt og það hefði breytt svolítið miklu að fara inn í hálfleik með 2-0 stöðu í stað 1-0. Frammistaðan er fín, við spilum fínan fótboltaleik og menn leggja líf og hjarta í þetta. Það er hellingur sem hægt er að byggja á."

Eiður Orri Ragnarsson samdi við Víking Reykjavík og var lánaður strax aftur til Keflavíkur og lýkur hann tímabilinu með Keflavík áður en hann mætir til æfinga hjá Víkingum. Hann hefur ekki verið í byrjunarliði Keflvíkinga síðan hann samdi við Víkinga.

"Það hefur ekkert að gera með það að hann sé orðinn leikmaður Víkings. Eiður hefur verið mjög góður fyrir okkur og komið vel inná í þessum síðustu þremur leikjum. Vonandi heldur hann áfram að standa sig vel fyrir okkur." sagði Haraldur Freyr.

Allt viðtalið er að finna hér í spilaranum að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.