26.08.26 - 10:47
Elvar Geir Magnússon
Með efasemdir um að Bouaddi muni hafa mikil áhrif strax

Ayyoub Bouaddi er aðeins 18 ára gamall.

Mynd: Manchester City

Ayyoub Bouaddi í landsleik með Marokkó.

Mynd: EPA

Ayyoub Bouaddi er aðeins 18 ára gamall.

Mynd: Manchester City
Franski fótboltablaðamaðurinn Djibril Diop er ekki viss um að marokkóski miðjumaðurinn Ayyoub Bouaddi muni strax hafa þau áhrif hjá Manchester City sem margir halda.
Bouaddi er 18 ára og var áðan kynntur sem nýr leikmaður City, sem kaupir hann frá Lille.

TENGT EFNI
Bouaddi til Man City (Staðfest)
„Ayyoub Bouaddi átti einn geggjaðan leik með Marokkó á HM 2026, gegn Brasilíu. Eftir það þá var hann ekki eins góður," segir Diop um þennan afskaplega spennandi leikmann.
„Þess vegna er ég smá varfærinn varðandi það hversu góður hann er einmitt núna. Það er enginn vafi á því hversu góður hann mun verða í framtíðinni. Manchester City er að kaupa efnilegan leikmann, þeir eru ekki að borga þessa upphæð í samræmi við það hversu góður hann er núna."
„Hans leikstíll passar út um allt. Hann passar í ensku úrvalsdeildina en passar örugglega enn betur í spænsku deildina vegna þess hvernig hann vinnur á miðsvæðinu. Hann mun hafa áhrif hjá Manchester City en ég er ekki viss um að hann muni gera það strax."
„Þú getur gefið honum boltann á þröngum svæðum en hann mun ráða við það. Ástæðan fyrir því að City borgaði fyrir svona ungan leikmann er sú að hann hefur þroska fram yfir aldur."