Fotbolti.net
13.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Haaland: Bellingham með þeim allra bestu í heimi

Haaland: Bellingham með þeim allra bestu í heimi
Canon

Mynd: EPA

Stórstjörnurnar Erling Haaland og Jude Bellingham léku saman hjá Borussia Dortmund í tvö ár og þekkjast mjög vel.
Haaland: Vel gert Bellingham og dómari
TENGT EFNI

Haaland: Vel gert Bellingham og dómari

Þessir heimsklassa leikmenn mættust í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins um helgina og reyndist Bellingham hetjan þegar hann skoraði bæði mörk Englendinga í sigri gegn Noregi.

„Bellingham er einn af bestu fótboltamönnum í heimi. Hann er miðjumaður en gerir samt allt á vellinum, hann er alls staðar. Real Madrid og England eru heppin að hafa þennan leikmann innanborðs. Hvaða fótboltamaður sem er myndi vilja hafa Bellingham í sínu liði, hann er ótrúlega góður," sagði Haaland eftir tapið gegn Englandi.

Morgan Rogers, liðsfélagi Bellingham í enska landsliðinu, tók undir orð Haaland.

„Hann gæti staðið uppi sem leikmaður mótsins... hann hefur verið ótrúlegur hingað til," sagði Rogers, en Bellingham er kominn með 6 mörk og stoðsendingu í 6 leikjum á lokamótinu.

Bellingham var á gulu spjaldi fyrir leikinn gegn Noregi. Gult spjald gegn Haaland og félögum hefði orðið til þess að hann myndi missa af undanúrslitunum gegn Argentínu.

„Mamma hamraði stöðugt á því alla vikuna að ég ætti að passa hvað ég segi, hvernig ég tækla, hvaða svipbrigði ég sýni og hvernig ég bregst við tilfinningalega til þess að forðast gult spjald."

Bellingham: Tuchel veit ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður
TENGT EFNI

Bellingham: Tuchel veit ekki hvernig það er að spila við þessar aðstæður

Haaland: Bellingham með þeim allra bestu í heimi
Canon

Mynd: EPA

Haaland: Bellingham með þeim allra bestu í heimi
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.