Fotbolti.net
13.07.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Courtois: Frakkland eða Spánn vinnur HM

Courtois: Frakkland eða Spánn vinnur HM
Canon

Mynd: EPA

Belgíski landsliðsmarkvörðurinn Thibaut Courtois, sem af mörgum er talinn sá besti í heimi, hefur tjáð sig um undanúrslit heimsmeistaramótsins.
Courtois stóð sig vel með Belgíu á HM en fór meiddur af velli í naumu tapi gegn Spánverjum í 8-liða úrslitum. Senne Lammens kom inn af bekknum í staðinn og gerði mistök sem leiddu til þess að Mikel Merino fylgdi marktilraun liðsfélaga síns eftir með sigurmarkinu.

Kennir Lammens um að hafa eyðilagt drauma þjóðarinnar
TENGT EFNI

Kennir Lammens um að hafa eyðilagt drauma þjóðarinnar



Courtois hefur gefið sitt álit á undanúrslitunum, þar sem Spánn mætir Frakklandi í endurtekningu á undanúrslitaleik Evrópumótsins 2024 og undanúrslitaleik Þjóðadeildarinnar í fyrra, en Spánn hafði betur í þeim viðureignum.

Argentína og England eigast einnig við í undanúrslitum en Courtois virðist ekki hafa mikla trú á ríkjandi heimsmeisturum eða Englendingum.

„Liðið sem vinnur undanúrslitaleikinn Spánn-Frakkland mun vinna heimsmeistaramótið," segir 34 ára Courtois sem vill hvíla sig frá landsliðinu næstu misserin.

„Ég vil fá eins árs hvíld án þess að spila einn einasta landsleik fyrir Belgíu og svo get ég komið ferskur aftur fyrir undankeppni EM 2028. Ég veit ekki hvort Belgía muni samþykkja þessa beiðni."

Courtois ræddi einnig um félagslið sitt Real Madrid og er spenntur fyrir næstu leiktíð undir stjórn José Mourinho eftir tvö titlalaus tímabil í röð.

„Real Madrid er búið að kaupa góða leikmenn og topp þjálfara. Það er undir okkur komið að svara gagnrýninni."

Madrídingar eru búnir að krækja í Marc Cucurella, Denzel Dumfries, Bernardo Silva og Ibrahima Konaté á upphafi sumars.

David Alaba, Dani Ceballos og Fran García eru farnir.

Courtois: Leið eins og ég gæti spilað áfram
TENGT EFNI

Courtois: Leið eins og ég gæti spilað áfram

Courtois: Frakkland eða Spánn vinnur HM
Canon

Mynd: EPA

Courtois: Frakkland eða Spánn vinnur HM
Canon

Mynd: EPA

Courtois: Frakkland eða Spánn vinnur HM
Canon

Mynd: EPA

Courtois: Frakkland eða Spánn vinnur HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.