Fotbolti.net
12.07.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Hvergi nærri hættir á markaðnum"

Sandro Tonali var keyptur til Spurs fyrir 92,5 milljónir punda.

Sandro Tonali var keyptur til Spurs fyrir 92,5 milljónir punda.

Canon

Mynd: EPA

Það hefur ekkert félag á Englandi farið jafn ákveðið inn í félagaskiptagluggann nú í sumar og Tottenham. Eftir tvö tímabil sem voru langt undir væntingum virðist allt benda til þess að ný stjórn félagsins ætli að snúa blaðinu við með afgerandi hætti.

Þessi frétt er hluti af grein sem birtist 7. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Umfjöllunin er í heild sinni hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um áskriftarleiðina hér.
Spurs hefur varið næstum því 200 milljónum punda í miðjumennina Mateus Fernandes og Sandro Tonali en ásamt þeim hafa Jan Paul van Hecke, Andy Robertson, Marcos Senesi og Martin Dubravka einnig samið við félagið.

Hjálmar Örn Jóhannsson og Ingimar Helgi Finnsson, stuðningsmenn félagsins, telja litlar sem engar líkur á því að Spursarar séu hættir á markaðnum.

„Sagan segir að Spurs séu hvergi nærri hættir á markaðnum og næst eigi að styrkja sóknina. Það verða keyptir hið minnsta tveir leikmenn í þær stöður. Svo verður fróðlegt að sjá hvaða leikmenn verða seldir. Luka Vuskovic er farinn, Dragusin er farinn og fleiri munu fylgja,“ segir Ingimar.

„Tottenham er ekki hætt. Við eigum eftir að selja líka og það gæti farið af stað snjóbolti af ýmsu áhugaverðu," segir Hjálmar.

„Þetta höfum við aldrei séð áður" - Hvað er að gerast hjá Tottenham?
TENGT EFNI

„Þetta höfum við aldrei séð áður" - Hvað er að gerast hjá Tottenham?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.