13.08.26 - 12:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fram reyndi að fá þriðja Rúnarssoninn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram reyndi samkvæmt heimildum Fótbolta.net að fá Eystein Rúnarsson í sínar raðir fyrir gluggalok en Grindavík og Fram náðu ekki saman.
Eysteinn er varnarmaður sem fæddur er 2008 og hefur verið fastamaður í Grindavíkurliðinu í Lengjudeildinni á þessu tímabili.
Hann á að baki fimm leiki með U19 landsliðinu og spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki 2024.

Hjá Fram eru eldri bræður Eysteins. Sigurjón er leikmaður meistaraflokks karla og Anton Ingi er þjálfari kvennaliðsins.
Glugginn hjá Fram, sem situr í 3. sæti Bestu deildarinnar, var ansi rólegur, félagið kallaði Óliver Elís Hlynsson til baka úr láni frá ÍR og svo komu yngri leikmenn til baka frá venslaliðinu Úlfununum.
Grindavík mætir Þrótti í 18. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst 18:00 og fer fram á Stakkavíkurvelli.