13.08.26 - 16:03
Elvar Geir Magnússon
Ünal aftur til Getafe (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Enes Ünal hefur yfirgefið Bournemouth og snýr aftur til spænska félagsins Getafe.
Þessi 29 ára gamli tyrkneski sóknarmaður fer á frjálsri sölu en Getafe gæti endað á að borga 1,2 milljón punda ef Ünal stendur sig á Spáni. Þá fær Bournemouth 20% af næstu sölu.

Dvöl Ünal á Englandi einkenndist af meiðslum; hann lék 58 leiki og skoraði fimm mörk fyrir Bournemouth. Hann kom fyrst á láni frá Getafe í janúar 2024 áður en félagaskiptin voru gerð varanleg síðar það ár.
„Unal var vinsæll í leikmannahópnum og skilur eftir sig jákvæð spor, bæði innan vallar og utan, á þeim tíma sem hann var hjá Bournemouth,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
Bournemouth er með Evanilson, nýja leikmanninn Alvaro Rodriguez og Daniel Jebbison til taks í fremstu stöðu. Eli Junior Kroupi er einnig kostur en hann verður frá vegna meiðsla næstu þrjá mánuði.

???????? ???????? ???????????????????????????????? ???????? ????????????????? ?????????????????... ???? ???????????????????? ???????? ???????????????????????????? ???????????????? ????????????????????????????????, ???????????????????????????????? ???? pic.twitter.com/28mgwXRT71
— Getafe C.F. (@GetafeCF) August 13, 2026