Fotbolti.net
13.08.26 - 13:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Öflugur varnarmaður í Garðabæinn (Staðfest) - Fékk meðmæli frá gamla læriföðurnum

Öflugur varnarmaður í Garðabæinn (Staðfest) - Fékk meðmæli frá gamla læriföðurnum
Canon

Mynd: De Paul Blue Demons

Kvennaboltinn
Bandaríski varnarmaðurinn Sydney Anne Parker gekk í raðir Stjörnunnar á lokadegi félagaskiptagluggans.

Hún er fædd árið 1999 og kemur frá portúgalska félaginu SF Damaiense.

Þar lék hún undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar sem er fyrrum þjálfari Stjörnuliðsins og var þá með núverandi þjálfara Stjörnunnar, Óskar Smára Haraldsson, sem sinn aðstoðarmann.

Óskar fékk góð meðmæli frá Kristjáni um Sydney.
Stjarnan fékk einnig Vigdísi Eddu Friðriksdóttur frá FH fyrir lok gluggans. Vigdís er að snúa til baka eftir krossbandsslit. Stjarnan seldi hins vegar Úlfu Dís Kreye Úlfarsdóttur til Breiðabliks.

Stjarnan situr í 3. sæti Bestu deildarinnar og spilar í dag útileik gegn ÍBV sem er í 4. sætinu. Sydney og Vigdís eru komnar með leikheimild fyrir leikinn í kvöld.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik18+2537
2FH18+2437
3ÍBV18-327
4Stjarnan18+426
5Þróttur R.18-323
6Grindavík/Njarðvík18-822
7Fram18-1522
8Valur18-920
9Víkingur R.18-1120
10Þór/KA18-419
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.