Fotbolti.net
13.08.26 - 18:53
Brynjar Ingi Erluson

Sambandsdeildin: Evrópuævintýri Vals er lokið

Valsmenn eru úr leik

Valsmenn eru úr leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Nordsjælland 5 - 0 Valur (7-0, samanlagt)
1-0 Hjalte Boe ('4 )
2-0 Villum Berthelsen ('45 )
3-0 Markus Walker ('61 )
4-0 Lamine Sadio ('71 )
5-0 Levy Nene ('73 )
Lestu um leikinn
Evrópuævintýri Vals er lokið eftir 5-0 skell gegn danska stórliðinu Nordsjælland í síðari leik liðanna í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar á Right to Dream-leikvanginum í Farum.

Valsmenn töpuðu fyrri leiknum 2-0 á Hlíðarenda og þurftu því að vinna upp tveggja marka forskot í Danmörku.

Nordsjælland hafði öll völd á vellinum og komst yfir eftir aðeins fjórar mínútur. Hjalte Boe skoraði þá eftir sendingu Prince Amoako.

Undir lok fyrri hálfleiks vildu Valsmenn fá vítaspyrnu þegar Samúel Kári Friðjónsson féll í teignum. Atvikið var skoðað í VAR en þar sást að Juho Lahteenmaki fór fyrst í boltann og því var ekkert dæmt.

Heimamenn bættu við öðru marki skömmu síðar eftir að Hörður Ingi Gunnarsson tapaði boltanum. Danirnir brunuðu fram og Villum Berthelsen kláraði sóknina með marki.

Markus Lund Nakkim komst næst því að skora fyrir Val á 57. mínútu en tilraun hans hafnaði í stönginni.

Eftir það gengu Nordsjælland-menn endanlega frá leiknum með þremur mörkum á tólf mínútum.

Frederik Schram varði skot Victors Gustafsen en Markus Walker fylgdi á eftir og skoraði úr frákastinu.

Lamine Sadio og Levy Nene skoruðu síðan með tveggja mínútna millibili og fullkomnuðu stórsigur heimamanna.

Nordsjælland vann einvígið samanlagt 7-0 og Evrópuævintýri Vals er þar með lokið.

Danska liðið mætir annað hvort Sheriff frá Moldóvu eða St. Gallen frá Sviss í umspilinu.
Sambandsdeildin: Evrópuævintýri Vals er lokið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.