Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 13. september 2020 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
Hodgson: Zaha vill skipta um félag
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha gerði eina mark leiksins er Crystal Palace lagði Southampton að velli í fyrstu umferð nýs tímabils í ensku úrvalsdeildinni.

Zaha vill ólmur skipta yfir til stærra félags en verðmiðinn á honum hefur fælt áhugasöm félög í burtu. Kantmaðurinn leikni er samningsbundinn Palace til 2023.

„Wilf sýndi mikla yfirvegun til að skora sigurmarkið. Hann lét það líta út fyrir að vera auðvelt," sagði Hodgson eftir sigurinn.

„Hann vill fara til stærra félags, það er ekkert leyndarmál. Hann vill að félag bjóði í sig en ég vona að það gerist ekki. Hann vonast til að stórlið kaupi sig áður en markaðurinn lokar.

„Síðan ég tók við Palace hefur hann oft sagst vilja skipta yfir til stærra félags. Það getur ekki gerst nema eitthvað félag sé reiðubúið til að borga fyrir hann. Þangað til verður hann að spila fyrir okkur."

Athugasemdir
banner
banner
banner