Finnst hann skulda Grindavík - „Eitthvað það versta sem ég hef gert á ævinni"

Æltar að vera áfram í Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék síðast í 2. deild árið 2010.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þetta var ömurlegt'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

'Þetta var vika af rússíbanatilfinningum'

Mynd: Guðmundur Sigurðsson

Æltar að vera áfram í Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þrátt fyrir að Grindavík hafi fallið úr Lengjudeildinni ætlar miðvörðurinn reynslumikli að halda tryggð við félagið og spila annað ár í gula búningnum. Hann ræddi við Fótbolta.net um ákvörðunina.

Damir tekur slaginn áfram í Grindavík þrátt fyrir fall (Staðfest)
„Ég er búinn að taka ákvörðun, ég verð áfram Í Grindavík og það var auðveld ákvörðun," segir Damir.
„Það er margt búið að fara í gegnum hausinn á mér þessa síðustu tvo sólarhringa, en það kom aldrei í hausinn á mér að fara í eitthvað annað lið. Það var annað hvort að halda áfram eða leggja skóna á hilluna. Ég er búinn að hugsa þetta núna í tæpa tvo daga, það fór margt í gegnum hausinn á mér þegar ég horfði á stákana spila síðasta leikinn. Ég er bara þannig að mér finnst ég skulda félaginu. Ég kom ekki til Grindavíkur til að fara niður um deild, finnst ég skulda þeim að vera áfram og koma þeim aftur upp strax."
Áttu mörg samtöl eða ertu að melta þetta einn með sjálfum þér?
„Ég er búinn að taka nokkur símtöl í fólk sem hefur verið til staðar fyrir mér, hvort sem það er í fótboltanum eða utan vallar. Þegar ég tók allt saman varð þetta ákvörðunin til að taka, vera áfram og taka allavega eitt ár í viðbót með Grindavík."
Þú segir að valið hafi verið á milli þess að vera áfram eða hreinlega að hætta í boltanum. Það hefur þá ekki komið upp sú hugsun að leyfa þessu aðeins að malla og sjá hvað kæmi upp?
„Nei, mig langaði að taka þessa ákvörðun og ýta þessu svo til hliðar í fríinu. Svo komum við til baka á undirbúningstímabilið og þá er það full ferð áfram. Mér fannst ég þurfa að taka þess ákvörðun sem fyrst."
Hægt að pæla í alls konar
Grindavík féll í lokaumferðinni eftir að hafa gert jafntefli við botnlið Ægis. Sigur þar hefði tryggt Grindavík áframhaldandi veru í Lengjudeildinni. Ef þú horfir yfir tímabili, hvar vantaði upp á, hvað klikkaði?
„Það vantaði aðeins meiri reynslu í hópinn, við byrjuðum tímabilið með mikið af ungum leikmönnum. Viljinn var að spila ungum leikmönnum og sjá hvernig það færi. Planið var aldrei að þetta myndi enda svona. Fótboltinn gefur manni mikið, en tekur líka helvíti mikið frá manni, boltinn er óútreiknanlegur. Það er alveg hægt að pæla í alls konar, en að lokum þá voru það bara við leikmennirnir sem áttum að standa okkur og við gerðum það ekki í flestum leikjum."
Snýst um félagið og fólkið í kring
Það að vera spila í 2. deild, er ekkert skrítið að hugsa til þess?
„Nei nei, ekkert þannig. Ég hef spilað þarna áður, fyrir 47 árum síðan eða eitthvað. Mér fannst ég þurfa að taka þessa ákvörðun sem fyrst svo ég gæti hætt að hugsa endalaust um það hvað ég ætlaði að gera. Þetta snýst ekkert um mig, snýst meira um félagið og samfélagið í kringum liðið. Fólkið í Grindavík er ótrúlegt og mér líður eins og ég sé búinn að vera þarna í mörg ár. Fólkið er tilbúið að gera allt fyrir klúbbinn."
Damir lék síðast í 2. deild með Hvöt árið 2010, þá var hann tvítugur.
Pínu galið að falla með 25 stig
Grindavík fékk 25 stig í deildinni sem var jafnmikið og Völsungur fékk í fyrra og endaði þá í 7. sæti. Er svekkjandi að horfa í það?
„Já, það er það. Það er pínu galið að maður sé að falla niður um deild með 25 stig. En ef þú vinnur ekki liðin sem eru í kringum þig þá áttu ekkert betra skilið en þetta, eins leiðinlegt og það hljómar."
Örugglega það versta sem ég hef gert á ævinni
Þú varst í leikbanni í lokaumferðinni. Hvernig var að fylgjast með þessu?
„Þetta var ömurlegt, örugglega eitthvað það versta sem ég hef gert á ævinni. Það fóru allar tilfinningar í gegnum líkamann. Fyrir leik, ég held að ég hafi tekið sjö kaffibolla klukkutíma fyrir leik. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa því, þetta var ömurlegt."
Það voru tilfinningasveiflur í lokaleikjunum. Grindavík komst í 3-0 gegn HK, missti það niður en skoraði undir lokin og vann þar sigur. Liðið komst svo yfir gegn Ægi en heimamenn í Ægi náðu að jafna leikinn á laugardaginn og þar við sat. Á sama tíma vann Völsungur og komst upp fyrir Grindavík í töflunni.
„Eftir HK leikinn þá hugsuðum við ekki að við værum öruggir, það er stórhættuleg hugsun að fara inn í leik og vanmeta einhvern andstæðing. Þetta var vika af rússíbanatilfinningum, sérstaklega þegar maður veit að maður er ekki að fara spila, þá er þetta bara verra."
Fjórtán leikir á milli spjalda
Þú fékkst gult spjald gegn HK. Hugsaðir þú „andskotinn, ég er ekki með í lokaleiknum?"
„Já, það er nákvæmlega það sem ég hugsaði um leið og ég braut af mér. Ég held ég hafði verið á þremur gulum síðan í 5. eða 6. umferð. Ég hugsaði líka strax af hverju ég tók ekki eitthvað brot og fékk gult fyrr á tímabilinu."
Stefnan sett beint aftur upp
Hvernig upplifir þú hljóðið í Grindvíkingum?
„Við vorum með smá lokahóf eftir leik til að slútta tímabilinu. Fólkið í Grindavík er ekki þekkt fyrir að gefast upp. Miðað við það sem ég er búinn að heyra þá er planið að komast strax aftur upp og fara á fullt að vinna í því. Það er líka það sem lætur mig vilja vera áfram hjá félaginu," segir Damir að lokum.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lék síðast í 2. deild árið 2010.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

'Þetta var ömurlegt'

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

'Þetta var vika af rússíbanatilfinningum'

Mynd: Guðmundur Sigurðsson
