Fotbolti.net
08.09.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Samningi Edu við Nottingham Forest rift

Samningi Edu við Nottingham Forest rift
Canon

Mynd: EPA

Edu hefur verið rekinn sem yfirmaður fótboltamála hjá Nottingham Forest. Rúmu ári eftir að hann tók við starfinu.

Hann hefur ekki mætt á leik hjá liðinu síðan í febrúar og hefur ekki farið á völlinn eða æfingasvæðið síðan í mars. Þá fóru sögusagnir af stað að hann væri að yfirgefa félagið.
The Athletic segir að Forest ætli ekki að fá nýjan mann í hans stað né tilkynna um brotthvarf hans.

Staða Edu hjá Forest var undir smásjá eftir óreiðukennda leiktíð síðasta tímabil, þar sem liðið átti í fallbaráttu og hafði fjóra fasta þjálfara á tímabilinu. Liðið hafði verið að keppa um sæti í Meistaradeildinni undir stjórn Nuno Espirito Santo tímabilið áður.

Athletic greindi frá því í ágúst að rifrildi hefði komið upp milli Nuno og Edu, sem að lokum varð hvati þess að portúgalski þjálfarinn hætti störfum í september 2025.

Ange Postecoglou var síðan ráðinn, en valdatíð hans stóð aðeins í 39 daga áður en Sean Dyche var skipaður í hans stað. Dyche hætti störfum í febrúar og Vitor Pereira var skipaður eftirmaður hans. Oliver Glasner, fyrrum stjóri Crystal Palace, hefur síðan verið ráðinn eftirmaður Pereira.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.