08.09.26 - 11:20
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar Páll á ár eftir hjá Gróttu - „Erum að ganga frá því"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson var að ljúka sínu öðru tímabili sem þjálfari Gróttu og hann á ár eftir af samningi sínum við félagið.
Arnar Þór Axelsson, yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu, segir að ekki sé frágengið að Rúnar Páll verði áfram hjá félaginu en verið sé að vinna í að ganga frá því. „Við erum að ganga frá því," segir Arnar.
Rúnar Páll hefur verið orðaður við sitt gamla félag Stjörnuna síðustu mánuði en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum 2014 og var þjálfari liðsins til ársins 2021.

Rúnar Páll tók við Gróttu fyrir síðasta tímabil, kom liðinu upp úr 2. deild og liðið endaði í 8. sæti Lengjudeildarinnar í ár.