Fotbolti.net
08.09.26 - 11:11
Elvar Geir Magnússon

Mourinho fékk mjög óvenjulega gjöf frá blaðamanni

Mourinho fékk mjög óvenjulega gjöf frá blaðamanni
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid fær Inter í heimsókn í Meistaradeildinni í kvöld en Jose Mourinho, stjóri Real, fékk óvenjulega gjöf frá blaðamanni á fréttamannafundi fyrir leikinn.

Hann fékk vatnsúðara til minningar um eitt eftirminnilegasta kvöld hans sem stjóri Inter, tímabilið 2009-10. Hann vann þá Barcelona samanlagt 3-2 í undanúrslitum en Inter vann svo keppnina.

Eftir sigurinn gegn Börsungum hljóp Mourinho um Nývang í fagnaðarlátunum. Kveikt var á vökvunarkerfi vallarins en það stöðvaði ekki Mourinho og leikmenn hans.
Meistaradeildin í dag - Veislan er að byrja
TENGT EFNI

Meistaradeildin í dag - Veislan er að byrja

Ítalski blaðamaðurinn Tancredi Palmeri gaf Mourinho úðarann eftir fréttamannafund í gær og fékk góð viðbrögð frá portúgalska stjóranum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.