Fotbolti.net
07.09.26 - 16:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Gat varla labbað í maí - „Á Gauta eiginlega allt að þakka varðandi fótboltaferilinn"

Ásgeir lék sinn fyrsta leik á árinu í gær.

Ásgeir lék sinn fyrsta leik á árinu í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásgeir Sigurgeirsson lék í gær sinn fyrsta leik á tímabilinu þegar hann kom inn á sem varamaður í liði KA gegn Breiðabliki. Ásgeir hefur glímt við hnémeiðsli, ekki hans fyrstu á ferlinum, en náði sér heilum og er kominn af stað aftur.

Hann spilaði síðasta stundarfjórðunginn eða svo gegn Blikum og hjálpaði liðinu að landa dýrmætum sigri i fallbaráttunni.

Fótbolti.net ræddi við Ásgeir í dag um endurkomuna.
Gat rétt svo labbað í fimm mánuði
„Þetta hafðist!" segir Ásgeir. Hann segir að lengi vel hafi litið út fyrir að ferlinum gæti verið lokið.

„Á tímapunkti hugsaði ég um að geta náð að lifa nokkuð eðlilegu lífi og verkjalausu. Ég var mikið verkjaður alla daga í svona fimm mánuði, gat rétt svo labbað. Það var ýmislegt í hnénu sem var að hrjá mig, eitthvað sem ég get ekki útskýrt sjálfur. Það var eitthvað í liðþófanum, brjóskið og beinflísar - sitt lítið af hverju sem Gauti náði að sjóða saman."

„Ég er bara góður núna, eins og ég var í raun og veru fyrir slysið í desember. Mér finnst ég vera nokkuð eðlilegur í hreyfingum. Ég í raun og veru veit ekki hvað gerðist, það gerðist eitthvað á æfingu í desember, ég bólgnaði upp, finnst líklegt að liðþófinn hafi klemmst eða skemmst þá sem olli því að hnéð var í nokkuð læstri stöðu í helvíti langan tíma."


Á Gauta gríðarlega mikið að þakka
Ásgeir er mjög þakklátur Gauta Laxdal lækni fyrir hans þátt í endurkomunni.

„Ég á Gauta helvíti mikið að þakka fyrir minn feril. Þetta er ekki í fyrsta, ekki annað, ekki í fimmta og ekki í sjötta skiptið - ég held þetta hafi verið í sjöunda skiptið sem hann hefur reddað mér. Ég á honum eiginlega allt að þakka varðandi fótboltaferilinn minn."

Gat ekki lifað eðlilegu lífi
Frá því í desember, hvað hefur þú þurft að gera varðandi aðgerðir og sprautur og slíkt?

„Ég fór í þrjár myndatökur að mig minnir, tvær sterasprautur og tvær aðgerðir. Svo var þetta endalaus tími á hjóli, endalaus tími í rækt og endalaus tími í köldu vatni. Helvíti mikil vinna sem ég hef þurft að leggja á mig."

„Mín fyrsta hugsun í apríl/maí var að komast í það stand að geta lifað nokkuð eðlilegu lífi og geta elt dætur mínar úti. Á þeim tímapunkti var það ekki staðan."


Ákvað að gefa þessu síðasta séns
„Um leið og ég fékk að fara aðeins aftur í fótbolta, vera með strákunum og vera í kringum það. Þá borgaði öll vinnan sig. Punkturinn yfir i-ið var svo að koma inn á í gær, fá nokkrar mínútur og hjálpa liðinu að landa sigri. Það var mjög dýrmætt fyrir mig."

„Ég fór í aðgerð 15. maí og svona þremur vikum seinna kom í ljós að hún heppnaðist mjög vel. Út frá því fékk ég smá von og ég gerði allt sem ég gat gert til að auka líkurnar á að ná endurkomunni. Ég ákvað að gefa þessu síðasta séns, svo lengi sem það kæmi ekki bakslag þá myndi ég halda áfram. Og bakslagið kom aldrei og hér er ég í dag."


Til í allt fyrir KA
Þú ert búinn að vera lengi hjá KA, skipta tilfinningarnar til félagsins þig máli í endurkomunni?

„Mín fyrsta hugsun var að koma skrokknum í þannig stand að ég gæti lifað eðlilegu lífi. KA hefur gefið mér alveg hryllilega mikið í gegnum tíðina og erfitt að bakka út í þessari stöðu. Ef að menn trúa að ég geti hjálpað liðinu, hvernig sem það væri, með því að koma inn á, vera á bekknum, mæta á æfingar eða þess vegna safna peningum. Ég er til í allt."

Ásgeir segir að formið sé allt í lagi. „Ég finn mun á mér milli vikna núna, fyrstu mínúturnar eru komnar og það er hægt að byggja ofan á það. Formið er á nokkuð góðum stað."

Mikill áfangi í gær
Hvernig var stundin þegar flautað var til leiksloka í gær?

„Það var miklu fargi af manni létt, búinn að klæða mig í treyjunni, komast inn á völlinn aftur og hjálpa að ná í þessu þrjú stig sem voru mjög sæt og kærkominn. Vorum búnir að bíða helvíti lengi eftir þeim."

Leikmönnum er ekki heldur sama
Stemningin á leiknum var góð og greinilegt að stuðningsfólki KA er ekki sama um stöðuna sem liðið er í.

„Það er líka búið að sjást í síðustu leikjum að okkur leikmönnum er ekki heldur sama. Það kom smá innspýting með því að fá Eið til klúbbsins. Það hefur haft virkilega góð áhrif."

Hvert orð frá honum vegur þyngra en frá öðrum
Hvernig er fyrir leikmann að hafa einn besta leikmann Íslands, ef ekki þann besta, að segja sér hvernig eigi að gera hlutina?

„Það er bara geðveikt. Hvert orð frá honum vegur kannski þyngra en frá einhverjum öðrum. Hann velur orðin vel og maður finnur fyrir honum bæði í klefanum og á æfingum. Maður finnur hversu mikinn áhuga hann hefur á þessu."

Sigurinn gaf sjálfstraust inn í síðustu fimm leikina
Fimm leikir framundan í neðri hlutanum, hvernig sérðu þetta fyrir þér?

„Við förum inn í alla leikina til að vinna, það er bara þannig. Leikurinn í gær gaf okkur þrjú stig en gaf okkur ennþá meira sjálfstraust upp á framhaldið sem er mikilvægt. Við gerum allt til að vinna alla þessa fimm leiki sem eftir eru og við eigum fínan séns á því," segir Ásgeir að lokum.

KA er í 11. sæti, stigi frá öruggu sæti þegar 15 stig eru í pottinum. Næsti leikur liðsins er útileikur gegn FH.
Hann var mættr í leikmannahópinn gegn Fram í síðustu umferð á undan.

Hann var mættr í leikmannahópinn gegn Fram í síðustu umferð á undan.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigrinum í gær fagnað.

Sigrinum í gær fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Gleði með stigin þrjú.

Gleði með stigin þrjú.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hvert orð frá honum vegur kannski þyngra en frá einhverjum öðrum.

Hvert orð frá honum vegur kannski þyngra en frá einhverjum öðrum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ein af Gauta Laxdal frá árinu 2014.

Ein af Gauta Laxdal frá árinu 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppalinn í Völsungi.

Uppalinn í Völsungi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kom í KA fyrir tímabilið 2016.

Kom í KA fyrir tímabilið 2016.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.