Fotbolti.net
08.09.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

Albert: Ég hefði ekki getað beðið um meira

Albert Guðmundsson hetja í fyrsta leik.

Albert Guðmundsson hetja í fyrsta leik.

Canon

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson fékk draumabyrjun í búningi Lazio en hann var hetja liðsins í 2-1 sigri á Udinese í gær.

Hann gekk til liðs við félagið frá Fiorentina á lokadegi félagaskiptagluggans. Hann kom inn á þegar tíu mínútur voru til leiksloka og skoraði sigurmarkið átta mínútum síðar.
Ítalía: Albert hetja Lazio í sínum fyrsta leik - Sjáðu markið
TENGT EFNI

Ítalía: Albert hetja Lazio í sínum fyrsta leik - Sjáðu markið

„Ég hefði ekki getað beðið um meira. Ég er mjög ánægður. Þegar maður er á bekknum hugsar maður um að breyta leiknum. Ég er ánægður með stigin þrjú," sagði Albert í viðtali eftir leikinn.

„Við getum farið fullir sjálfstrausts inn í næsta leik. Við erum með níu stig úr fyrstu þremur leikjunum. Það er ekki tími til að slaka á, við verðum að halda áfram að leggja hart að okkur og undirbúa næsta leik."


Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Monza12-510
15Lecce12-1310
16Fiorentina12-119
17Parma12-128
18Sassuolo12-158
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.