07.09.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fékk rautt fyrir tveimur árum og verður í banni gegn Liverpool

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arnau Ortiz, vængmaður Atletico Madrid, verður í banni þegar liðið heimsækir Liverpool í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar á miðvikudaginn.
Ortiz fékk rautt spjald í forkeppni Sambandsdeildarinnar árið 2024 þegar hann spilaði með Slask Wroclaw gegn St. Gallen. Hann fékk gult fyrir dýfu og annað fyrir að mótmæla dómnum aðeins þremur mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

St. Gallen vann einvígið 4-3 og Ortiz hefur ekki getað tekið út bannið fyrr en núna.
Ortiz var í byrjunarliði Atletico í fyrstu umferð spænsku deildarinnar á þessu tímabili en hann hefur komið við sögu í þremur af fjórum leikjum liðsins.