13.10.26 - 22:28
Brynjar Ingi Erluson
Arteta ánægður með viðbrögðin - „Það mun bara hjálpa okkur“

Mikel Arteta

Mynd: EPA

Arsenal vann 3-0 sigur á Lille í kvöld

Mynd: EPA

Mikel Arteta

Mynd: EPA
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er mjög ánægður með samkeppnina í leikmannahópnum og segir að allir þurfi að vinna sér inn spilatíma hjá félaginu.

TENGT EFNI
Meistaradeildin: Man Utd tapaði og Yoro sá rautt í Madríd - Óvænt úrslit í Noregi
Arsenal fagnaði öruggum 3-0 sigri á Lille í Meistaradeildinni í kvöld en öll þrjú mörkin komu á sjö mínútna kafla í síðari hálfleik.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ánægður með sigurinn en taldi liðið þurfa að bæta ýmislegt í sínum leik, sérstaklega þegar kom að tæknilegum mistökum.
„Við þurfum að bæta okkur tæknilega því liðin á þessu stigi eru mjög vel skipulögð. Við gáfum boltann frá okkur í einföldum stöðum, vorum með slæmar fyrstu snertingar og tímasetningarnar voru ekki nógu góðar. Við sendum boltann inn á röng svæði og það gerði okkur erfitt fyrir. Um leið og við fórum að gera þetta betur náðum við að koma boltanum inn á hættuleg svæði í teignum og þá skiluðu gæðin sem við búum yfir sér.“
Arteta var einnig spurður út í frammistöðu varamannanna sem komu inn á og létu til sín taka. Hann var ánægður með þeirra framlag en vildi ekki síður hrósa þeim sem byrjuðu leikinn.
„Það á líka við um þá sem byrjuðu leikinn. Við komumst nokkrum sinnum í mjög góðar stöður en þeir sem kláruðu leikinn voru frábærir. Þeir náðu að auka ákefðina og bæta gæðin í okkar leik.“
„Þeir fá þessar mínútur vegna þess að þeir hafa unnið fyrir þeim. Allir þurfa að vinna sér inn sæti í liðinu og samkeppnin í hópnum er mikil. Það mun bara hjálpa okkur að ná betri frammistöðu.“
Arsenal heimsækir Nottingham Forest á sunnudag áður en liðið mætir Bayern München í Meistaradeildinni þremur dögum síðar.
„Meistaradeildin er erfið keppni og Lille er með frábært lið. Það hjálpar hins vegar alltaf að vinna leiki og það verður góð orka í hópnum þegar við byrjum að undirbúa okkur fyrir sunnudaginn,“ sagði Arteta.