13.10.26 - 19:35
Andri Stefánsson
Einkunnir Íslands - mögnuð frammistaða hjá okkar stelpum

Spilaði sinn 150. landsleik

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Skoraði sitt fyrsta landsliðsmark.

Ísland var rétt í þessu að vinna sannfærandi 5-0 sigur á Króatíu í umspili HM. Samanlagt fór 9-0
Ísland mætir Portúgal í næstu umferð sem er úrslitaleikur umspilsins.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnargjöf fótbolta.net úr leiknum.

Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
Fanney Inga Birkisdóttir – 7
Þurfti lítið sem ekkert að gera í markinu í kvöld. Hélt hreinu sem er alltaf sterkt.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - 7
Var góð varnarlega. Örugg í öllum sínum aðgerðum. Fín frammistaða frá Hafrúnu.
Glódís Perla Viggósdóttir – 7
Spilaði sinn 150. landsleik í kvöld, magnaður áfangi. Var sterk í hjarta varnarinnar og átti nokkrar góðar sendingar inn fyrir vörn Króata. Flott frammistaða.
Guðrún Árnadóttir – 7
Svipaður leikur og Glódís átti. Sterk í vörninni og skilaði fínustu frammistöðu.
Arna Eiríksdóttir – 7
Arna skilaði góðu dagsverki í dag. Þurfti lítið að gera varnarlega en leysti allt sem kom hennar megin. Tveir góðir leikir hjá henni.
Alexandra Jóhannsdóttir – 6
Sást lítið í þessum leik. Var fín varnarlega en kom með lítið að borðinu sóknarlega.
Katla Tryggvadóttir – 8
Skoraði þriðja mark Íslands sem var hennar fyrsta landsliðsmark. Skapaði mikinn usla. Mjög sterk frammistaða.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir – 6
Komst mjög oft í góðar stöður en náði ekki að nýta þær. Fín frammistaða frá henni en hún hefði eflaust viljað skora.
Sveindís Jane Jónsdóttir – 9
Lagði upp tvö mörk á gullfallegan hátt. Var mjög hættuleg sóknarlega og vörn Króata var í miklum vandræðum með hana.
Ída Marín Hermanssdóttir – 9
Þakkaði svo sannarlega traustið í byrjunarliðinu. Skoraði gott mark og lagði eitt upp. Fyrsta landsliðsmark hennar kom í kvöld. Fagleg frammistaða.
Hlín Eiríksdóttir – 8
Skoraði fyrsta mark Íslands og flóðgáttirnar opnuðustu. Góð frammistaða í báðum leikjunum.
Varamenn:
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir – 6
Birta Georgsdóttir – 7
Diljá Ýr Zoomers – 8
Emelía Óskarsdóttir – 6
Líf Joostdóttir Van Bemmel - 6