Fotbolti.net
13.10.26 - 20:27
Brynjar Ingi Erluson

Frank að snúa aftur í úrvalsdeildina?

Thomas Frank

Thomas Frank

Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank, fyrrum stjóri Brentford og Tottenham, er sagður líklegastur til að taka við Fulham ef félagið ákveður að reka Alvaro Arbeloa.
Kemur örvænting ef liðið vinnur ekki næsta leik
TENGT EFNI

Kemur örvænting ef liðið vinnur ekki næsta leik

Arbeloa tók við Fulham í sumar eftir að Marco Silva yfirgaf félagið og tók við Benfica í Portúgal.

Fulham hefur enn ekki unnið deildarleik undir stjórn Arbeloa og er aðeins með tvö stig. Samkvæmt talkSPORT er þolinmæði stjórnarmanna félagsins farin að renna út og eru þeir þegar byrjaðir að skoða mögulega arftaka hans.

Frank náði frábærum árangri með Brentford og tók við Tottenham á síðasta ári. Þar tókst honum hins vegar ekki að fylgja eftir góðum árangri sínum hjá Brentford og var hann rekinn í febrúar á þessu ári.

Daninn var orðaður við Fulham í sumar áður en Arbeloa var ráðinn og er nafn hans nú aftur komið upp. Kieran McKenna, fyrrum stjóri Ipswich Town, er einnig sagður koma til greina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.