13.10.26 - 18:21
Brynjar Ingi Erluson
„Ómögulegt að forðast allt þegar maður tekur upp símann“

Mynd: West Ham

Mynd: EPA

Mynd: West Ham
Ruben Dias, varnarmaður Manchester City, segir ómögulegt að komast hjá umræðunni um fjárhagsbrot félagsins en leggur áherslu á að leikmennirnir séu einbeittir að því sem gerist inni á vellinum.
Leikmenn Man City voru staddir með landsliðum sínum þegar þær fréttir bárust að félagið hefði verið fundið sekt um alvarleg brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009 til 2018.
Félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni en málið hefur verið eitt helsta umræðuefnið í enska fótboltanum og vakið mikla athygli víða um heim.
Dias segir að leikmennirnir treysti félaginu fullkomlega og að þeir hafi rætt málið sín á milli um leið og þeir komu aftur saman eftir landsleikjahléið.
„Þegar fréttirnar bárust fannst okkur mikilvægt að ræða málið sem fyrst þegar við kæmum aftur saman. Það gerðum við og eftir það vorum við allir á sömu blaðsíðu og gátum haldið áfram. Þetta gerðist á meðan við vorum dreifðir með landsliðunum en um leið og við hittumst ræddum við málin, róuðum okkur og héldum svo áfram.“
„Við erum mjög góðir í því að einbeita okkur að vinnunni og njótum þess að mæta á æfingar. Það er það sem við getum stjórnað og höfum alltaf gert. Við treystum félaginu fullkomlega.“
Dias viðurkennir að erfitt sé að leiða alla umræðuna hjá sér, sérstaklega þegar málið er á allra vörum.
„Það er mikill hávaði í kringum þetta og nánast ómögulegt að komast hjá því að sjá eitthvað, sama hversu mikið við reynum að halda okkur frá umræðunni. Það er ekki hægt að forðast allt þegar maður tekur upp símann.“
„En hvort sem hávaðinn er mikill eða lítill breytir það engu fyrir okkur. Þetta hefur alltaf verið svona. Fólki líkar ekki þegar við vinnum en við elskum að vinna. Það er eðlilegt að aðrir séu ekki ánægðir með það enda hafa þeir sama metnað og við,“ sagði Dias á fréttamannafundi fyrir leikinn gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni, en hann er spilaður á Etihad-leikvanginum á morgun.