13.11.15 - 23:12
Magnús Már Einarsson
Hólmar skammaði Lewandowski á góðri þýsku
Auglýsing

Hólmar Örn fékk tækifærið gegn Lewandowski í dag.

Mynd: Getty Images

„Við vorum ekki nógu þéttir í seinni hálfleik, við opnuðum okkur svolítið og hefðum þurft að vera þéttari eins og í fyrri hálfleik þar sem við vorum að fylgja öllum hlaupum og klikkuðum á því í seinni hálfleik,\" sagði Hólmar Örn Eyjólfsson sem spilaði í hjarta varnar Íslands í 4-2 tapi gegn Póllandi í Varsjá í kvöld.
„Það er alltaf slæmur dagur þegar þú færð fjögur mörk á þig og við eigum ekki að fá á okkur mörk eftir föst leikatriði, það er virkilega skúffandi en sem betur fer er þetta bara æfingaleikur og við eigum eftir að skoða þetta,\" sagði Hólmar sem leysti stöðu Kára Árnasonar í miðverðinum.
„Ef þú færð fjögur mörk á þig sem varnarmaður hefurðu augljóslega gert eitthvað rangt. Sem betur fer er þetta æfingaleikur og við eigum eftir að skoða þetta og fara yfir þetta.\"
Hólmar er einn þeirra sem koma til greina í hóp Íslands sem fer á Evrópumótið í Frakklandi.
„Ég er búinn að eiga gott tímabil og fæ að spreyta mig núna og vonandi aftur í janúar. Það er að bíða og sjá hvort ég heilli hann. Þetta er draumur síðan maður var lítill og auðvitað vill maður fara með og gerir sitt besta til að komast þangað.\"
Hólmar lét Robert Lewandowski framherja Póllands heyra það fyrir leikaraskap.
„Já hann lét sig detta allt í einu, sá ég var að ná honum og lét sig detta. Það var augljóslega ekki neitt á það. Ég sagði honum bara að þetta hafi ekki verið neitt á góðri þýsku.\"