Fotbolti.net
13.11.26 - 17:57
Brynjar Ingi Erluson

Skýtur á leikmenn Man Utd - „Það væri best fyrir hann að kalla sig bráðabirgðastjóra“

Mauricio Pochettino er nýr stjóri Man Utd

Mauricio Pochettino er nýr stjóri Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino hefur verið ráðinn nýr stjóri Manchester United og tekur formlega við starfinu 18. nóvember. Eitt af hans fyrstu verkefnum verður að koma leikmönnum liðsins í betra líkamlegt form.
Pochettino tekinn við Man Utd (Staðfest)
TENGT EFNI

Pochettino tekinn við Man Utd (Staðfest)

Michael Carrick var látinn taka pokann sinn eftir slæma byrjun á tímabilinu og var United fljótt að ná samkomulagi við Pochettino um að taka við liðinu.

Jamie Redknapp, spekingur á Sky Sports, telur að Argentínumannsins bíði afar erfitt verkefni og að hann þurfi fyrst og fremst að bæta líkamlegt ástand leikmannahópsins.

„Pochettino mun glíma við sömu vandamálin þar til hann fær tækifæri til að kaupa þá leikmenn sem hann þarf. Þeir eru ekki nógu góðir varnarlega og mótherjarnir hlaupa meira en þeir í nánast hverjum einasta leik. Hann verður að koma hópnum í form og ég held að það sé líklega það sem Carrick sér mest eftir að hafa ekki tekist.“

„Ég er yfirleitt ekki hrifinn af því þegar stjórar taka við liðum og halda því fram að leikmennirnir hafi ekki verið í nógu góðu formi, en í þessu tilfelli er það einfaldlega staðreynd. Þú getur ekki látið mótherjana hlaupa sex eða sjö kílómetrum meira en þitt lið í hverjum einasta leik og búist við því að vinna. Það gengur bara ekki.“

„Þeir þurfa að bæta líkamlega getu liðsins og klárlega fá inn betri leikmenn, en það er ekki alltaf auðvelt vegna fjárhagsreglna deildarinnar. Það er samt augljóst að þeir þurfa betri varnarmenn og að styrkja hópinn, því margir af þessum leikmönnum hafa einfaldlega ekki verið nógu góðir,“
sagði Redknapp.

Redknapp lét þó ekki þar við sitja og skaut föstum skotum á leikmannahóp United þegar hann rifjaði upp hvernig leikmenn félagsins hafa brugðist við stjóraskiptum undanfarin ár.

„Það væri líklega best fyrir Mauricio að kalla sig bara bráðabirgðastjóra, því þá myndu leikmennirnir að minnsta kosti hlaupa fyrir hann,“ sagði hann í lokin.

Þar vísaði hann til þess að leikmenn United hafa oftar en ekki lagt sig meira fram undir stjórn bráðabirgðastjóra á síðustu árum.
Skýtur á leikmenn Man Utd - „Það væri best fyrir hann að kalla sig bráðabirgðastjóra“
Canon

Mynd: EPA

Jamie Redknapp segir stórt verkefni framundan hjá Pochettino

Jamie Redknapp segir stórt verkefni framundan hjá Pochettino

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.