14.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Ravanelli til Perugia (Staðfest)




Ítalski sóknarmaðurinn Fabrizo Ravanelli eða "silfurrefurinn" hefur gengið til liðs við sitt gamla heimafélag Perugia. Ravanellli sem er 35 ára hefur verið án félags síðan að Dundee varð gjaldþrota í nóvember. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Perugia sem er í fjórða neðsta sæti í Serie A og ekki unni leik í deildinni en Ravanelli byrjaði ferilinn árið 1986 hjá félaginu og skoraði 41 mark í 90 leikjum. Síðan þá hefur hann komið víða við, vann Meistaradeildina með Juventus árið 1996 og hefur leikið með liðum eins og Lazio, Middlesbrough, Marseille og Derby.
Ravanelli lék ekki Evrópuleik með Dundee sem tapaði einmitt fyrir Perugia í fyrstu umferð evrópukeppni félagsliða í haust og því mun þessi magnaði sóknarmaður vera löglegur með Perugia en liðið mætir PSV Eindhoven í þriðju umferð keppninnar.
