14.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Stuttgart fær Zivkovic og Streller (Staðfest)

Boris Zivkovic.


Boris Zivkovic.

Þýska liðið Stuttgart hefur fengið tvö nýja leikmenn til liðs við sig í dag. Annarsvegar hefur liðið fengið króatíska varnarmanninn Boris Zivkovic en hann fékk sig lausan undan samningi hjá Portsmouth í gær og hefur Zivkovic nú þegar skrifað undir langtímasamning við Stuttgart. Zivkovic hefur bæði leikið í þýsku deildinni og Meistaradeildinni með Bayer Leverkusen og kemur hann því með góða reynslu inn í lið Stuttgart sem er í harðri toppbaráttu í Bundesligunni og mætir svo Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Hinn leikmaðurinn sem Stuttgart fékk í dag er Marco Streller sem kemur frá svissneska liðinu Basel. Streller sem er 22 ára framherji hefur skrifað undir samning við Stuttgart til 2008 en hann hefur alls skorað þrettán mörk fyrir Basel á leiktíðinni. Streller má hinsvegar ekki leika með Stuttgart í Meistaradeildinni því að hann lék með Basel í Evrópukeppni félagsliða og er því ólöglegur í Meistaradeildinni.
