Fotbolti.net
14.01.05 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Sigþór gerði tveggja ára samning við Val (Staðfest)

Sigþór gerði tveggja ára samning við Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Merki

Sigþór Júlíusson sem leikið hefur með KR undanfarin ár gerði í gær tveggja ára samning við Val en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins. Valur mun leika í efstu deild karla á næstu leiktíð. Sigþór er 29 ára gamall og frá Húsavík. Hann hóf feril sinn í efstu deild með Val árið 1995 og lék með liðinu 36 leiki og skoraði í þeim 5 mörk.
Hann gekk svo í raðir KR þar sem hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari.

Hann er sá þriðji sem gengur í raðir Vals frá KR eftir að síðasta tímabili lauk. Hinir eru þjálfarinn Willum Þór Þórsson og Guðmundur Benediktsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.