14.01.05 - 17:50
Gravesen til Real Madrid (Staðfest)

Gravesen með treyjuna sína

Gravesen með treyjuna sína

Eins og við greindum frá í morgun er daninn Thomas Gravesen kominn til Real Madrid en spænska félagið staðfesti þetta nú fyrir skömmu. Hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við spænsku risana en kaupverðið er í kringum 2,5 milljónir punda.
Hann hefði orðið samningslaus hjá Everton í sumar og þegar heyrðist af áhuga Real var erfitt fyrir Everton að halda í hann.
Hann gekkst undir læknisskoðunina í dag og skrifaði í kjölfarið undir samninginn og varð þar með opinberlega orðinn leikmaður Real.
John Sivabaek umboðsmaður Gravesen sagði meðal annars þetta við BBC í morgun: "Thomas er mjög spenntur yfir þessu. Hann er líka leiður vegna þess að hann átti fimm frábær ár hjá Everton. Thomas var mjög ánægður hjá Everton, en þegar Real Madrid vilja fá þig geturðu ekki sagt nei."