banner
   fim 14. janúar 2021 23:07
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Arsenal og Palace: Eze og Leno bestir
Mynd: Getty Images
Kantmaðurinn knái Eberechi Eze var besti maður vallarins samkvæmt einkunnagjöf Sky Sports er Arsenal og Crystal Palace mættust í eina leik kvöldsins í enska boltanum.

Leiknum lauk með markalausu jafntefli þar sem heimamenn í Arsenal geta þakkað markverði sínum Bernd Leno fyrir að halda þeim í leiknum með stórkostlegri markvörslu í fyrri hálfleik.

Leno er eini leikmaður vallarins sem fær 8 í einkunn rétt eins og Eze er sá eini sem fær 9. Eze komst nálægt því að skora í fyrri hálfleik þegar aukaspyrna hans hæfði stöngina og var hann beittasti leikmaður vallarins.

Alexandre Lacazette og Ainsley Maitland-Niles þóttu verstir í liði Arsenal, ásamt Nicolas Pepe sem kom inn af bekknum.

Arsenal: Leno (8), Bellerin (7), Holding (7), Luiz (6), Maitland-Niles (5), Ceballos (6), Xhaka (6), Saka (6), Smith-Rowe (6), Aubameyang (7), Lacazette (5)
Varamenn: Partey (6), Pepe (5), Nketiah (6)

Crystal Palace: Guaita (7), Ward (6), Tomkins (7), Kouyate (6), Mitchell (7), Townsend (6), McArthur (6), Milivojevic (6), Eze (9), Benteke (7), Zaha (7)
Varamenn: Ayew (6), McCarthy (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner