sun 14. febrúar 2021 15:20
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola um Gundogan: Fólk hló að mér
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola er stoltur af sínum mönnum eftir sannfærandi 3-0 sigur gegn Tottenham um helgina.

Ilkay Gündogan átti stórleik og skoraði tvennu en hann hefur verið funheitur á nýju ári og er byrjaður að spila mun framar en áður. Gündogan fiskaði einnig vítaspyrnuna sem varð að fyrsta marki leiksins.

Guardiola hefur áður sagt að Gündogan hafi burði til þess að spila sem fölsk nía.

„Ég hef oft sagt að hann getur spilað sem fölsk nía og fólk hló að mér. Í dag var augljóst hversu góður hann getur verið í þessari stöðu. Ég er ánægður fyrir hans hönd, hann var leikmaður mánaðarins í janúar og er að gera mjög vel í febrúar," sagði Guardiola, sem var svo spurður út í meiðsli Gündogan eftir að honum var skipt af velli á 69. mínútu.

„Við verðum að bíða og sjá með meiðslin. Þetta líta út fyrir að vera vöðvameiðsli."
Athugasemdir
banner
banner