Viðræður við Vinicius - Isak spenntur fyrir Liverpool - United fylgist með Delap - Arsenal bíður til sumars
   fös 14. febrúar 2025 12:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Musiala hjá Bayern til 2030 - „Listamaður og séní"
Mynd: EPA
Jamal Musiala hefur skrifað undir nýjan samning við Bayern Munchen en hann er nú bundinn til 2030.

Þýski landsliðsmaðurinn kom inn í lið Bayern árið 2020 og hefur verið í stóru hlutverki síðan.

Hann hefur komið við sögu í 30 leikjum á þessu tímabili, skorað 15 mörk og lagt upp átta.

„Ég er mjög ánægður. Bayern er eitt mikilvægasta félag heims, þar tók ég mín fyrstu skref sem atvinnumaður og ég er viss um að ég geti afrekað stóra hluti með félaginu á komandi árum," sagði Musiala við undirskrift.


Athugasemdir
banner
banner
banner