Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
   þri 14. apríl 2026 12:00
Kári Snorrason
Sex markverðir sem KR getur horft til
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við búum svo vel að að hafa Dóra að berjast við hann. Þetta er mikill missir. Við erum með ungan mann sem þriðja markmann þannig við þurfum aðeins að fara skoða í kringum okkur.“

Þetta sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson í viðtali á sunnudag aðspurður um markvarðarstöðu KR eftir meiðsli Arnars Freys Ólafssonar.

Arnar Freyr er með slitna sin í hné og býst hann sjálfur við að vera frá í um sex mánuði. Fróðlegt verður að sjá hvernig KR-ingar ætla að fylla í skarð Arnars.

Við á Fótbolta.net settum saman lista yfir sex markverði sem KR-ingar geta horft til.
Slapp
banner
banner