Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. maí 2022 05:55
Victor Pálsson
England í dag - Allt undir á Wembley
Mynd: EPA

Úrslitaleikur enska bikarsins er spilaður í dag en Liverpool og Chelsea eigast þá við á Wembley klukkan 15:45.


Þessi lið mættust fyrr á tímabilinu í úrslitaleik deildabikarsins en þá hafði Liverpool betur eftir vítaspyrnukeppni.

Liverpool er enn að berjast um enska meistaratitilinn og á þá einnig eftir að spila úrslitaleik Meistaradeildarinnar við Real Madrid.

Það er líka spilað í ensku Championship-deildinni en Sheffield United og Nottingham Forest spila í undanúrslitum um að komast upp.

Luton og Huddersfield eigast við í hinum undanúrslitaleiknum en aðeins eitt sæti er í boði í efstu deild og keppa fjögur lið um þau verðlaun.

ENGLAND: FA Cup
15:45 Liverpool - Chelsea

ENGLAND: Championship, Playoffs
14:00 Sheffield Utd - Nott. Forest


Athugasemdir
banner
banner
banner