Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   fim 14. maí 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Síðustu tveir leikir verið gjörsamlega frábærir hjá honum"
Úr leiknum gegn Þór.
Úr leiknum gegn Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Kom talsvert við sögu á síðasta tímabili.
Kom talsvert við sögu á síðasta tímabili.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Hans er að mínu mati besti hafsentinn í deildinni'
'Hans er að mínu mati besti hafsentinn í deildinni'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gott að vera með Steinþór Má - Stubb - fyrir aftan sig.
Gott að vera með Steinþór Má - Stubb - fyrir aftan sig.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markús Máni Pétursson, varnarmaður KA, hefur spilað vel í síðustu leikjum KA. Markús er efnilegur leikmaður, fæddur 2006, og hefur Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, mikla trú á varnarmanninum unga. Fótbolti.net ræddi við þjálfarann í vikunni.

Ábyrgðin á Markúsi er mikil og stækkaði hlutverkið hans mikið eftir að Ívar Örn Árnason var seldur til Breiðablik í vetur.

„Það er bara æðislegt að sjá hann stíga upp, ég er búinn að hafa þennan strák á æfingum hjá mér núna í einhvern tíma og hef gert plan fyrir hann. Hann skýst svolítið skjótt upp, var ekki einn af þeim sem var alltaf bestur í öllum yngri flokkum. Hann blómstraði seint, er með gríðarlega kosti þegar kemur að líkamlega þættinum og hugarfari," segir Haddi.

„Hann er aðeins eftir á í sumum þáttum eins og ég hef rætt við hann, en hann er á góðri leið. Það var aðeins í fyrstu leikjunum þar sem hann var settur í djúpu laugina á móti virkilega góðum liðum, stóð sig vel þrátt fyrir nokkur mistök. Svo hafa síðustu tveir leikir verið gjörsamlega frábærir hjá honum. Það er svolítið þannig með unga leikmenn sem kastað er út í djúpu laugina snemma, þá munu verða frammistöður þar sem vantar aðeins upp á og svo aðrar sem eru frábærar. Smám saman vill maður sjá stöðugleikann."

„Við höfum fengið þriðju fæstu mörkin á okkur í deildinni, við höfum haldið hreinu tvo leiki í röð og það er alveg búið að reyna á hann. Leikurinn á móti Þór var erfiður leikur að spila og ofan á það var verið að syngja söngva um hann, en hann stóð þetta allt af sér sem er gaman að sjá."

„Það hefur verið kallað eftir því að við spilum aðeins yngri strákunum og hann hefur svo sannarlega staðið undir mínum væntingum og ég held væntingum allra. Sama með Valdimar sem er jafngamall, hann kom inn á gegn ÍBV og hjálpaði okkur að klára þann leik. Við erum ótrúlega ánægðir með þá."


Segir Haddi sem lék á sínum leikmannaferli sem varnarmaður og tekur fram að hann sé harður húsbóndi þegar kemur að ungu varnarmönnunum sínum og að þeir þurfi að spila mjög vel til að fá klapp á bakið. „En þegar menn eru að reyna réttu hlutina þá er maður ánægður með þá og hann er klárlega á góðri leið. Hann er með svo mikið hafsenta-hugarfar, þó að hann geri mistök þá skiptir það hann ekki máli, hann er grjótharður; elskar að fara í návígi. Það eru færri svona strákar en voru áður fyrr. Hugarfarið mun koma honum langt." "

Frábært að hafa besta hafsent deildarinnar með honum
Hversu gott er fyrir hann að vera með mann eins og Hans Viktor Guðmundsson við hliðina á sér?

„Það er frábært. Hann er svo með Stubbinn bakvið sig sem talar mikið við hann, býr yfir mikilli reynslu og gefur ró. Hann er með stráka í kringum sig sem hafa spilað mikið í úrvalsdeildinni."

„Hans er að mínu mati besti hafsentinn í deildinni, sýndi það með því að vera valinn í landsliðið. Ég er búinn að færa Hans vinstra megin og er með Markús hægra megin. Ég held það gefi Markúsi mjög mikið að hafa Hans við hliðina á sér, Hans er bara það klókur, hreyfir sig rétt og hugsar rétt alltaf. Þegar þú ert ungur og færð svona góðan og reynslumikinn mann hliðina á þér þá munt þú vaxa hraðar, nærð hlutunum fyrr og Hans í þessu tilviki mun bakka Markús upp þegar hann gerir smá mistök. Ég er með ánægður hvernig við höfum komið Markúsi og Valdimar inn í byrjun móts. Stefnan er svo að fleiri ungir eins og t.d. Mikael Breki og Snorri Kristinsson verði í hlutverki, þeir eru að verða 100%."


Markús Máni og KA verða í eldlínunni klukkan 14:00 í dag þegar Ægir kemur í heimsókn á Greifavöllinn í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Slapp
banner
banner