Fotbolti.net
25.06.26 - 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Á leið til Danmerkur - „Ætla reyna komast sem fyrst upp í aðalliðið"

Auglýsing
Á leið til Danmerkur - „Ætla reyna komast sem fyrst upp í aðalliðið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

„Ég er mjög spenntur fyrir þessu og búinn að bíða eftir þessu lengi. Það er alveg smá skrítið að fara frá KR núna, hefði alveg verið til í að klára tímabilið, en ég leyfði Nordsjælland að taka ákvörðunina, var mjög til í bæði. Það er leiðinlegt að kveðja þegar gengur svona vel, en það er bara eins og það er," segir Alexander Rafn Pálmason sem er að kveðja KR.

Hann var í fyrra keyptur til danska félagsins Nordsjælland og þar sem hann varð 16 ára fyrr á þessu ári getur hann formlega gengið í raðir félagsins núna. Alexander er yngsti leikmaðurinn til að spila og skora í sögu efstu deildar á Íslandi.
„Nordsjælland vildi fá mig út strax. Ég fer út 29. júní og við í U19 liðinu byrjum að æfa 6. júlí. Ég er nokkuð bjartsýnn á að komast nokkuð hratt inn í aðalliðshópinn, það fer bara eftir því hversu vel gengur og hversu rétt skrúfaður hausinn er."

„Ég fer einn út, verð á heimavist þar sem nokkrir Íslendingar eru líka: vinkona mín Rebekka (Sif Brynjarsdóttir) og Daniel Ingi (Jóhannesson) eru bæði þar."

„Ég verð í blönduðu námi, verð í skóla hjá klúbbnum og verð líka í fjarnámi héðan frá Íslandi. Ég ætla að taka dönskuna líka í fjarnámi, reyna ná henni sem fyrst. Ég ætla ekki að ljúga, ég er búinn að vera duglegur á Duolingo. Ég var reiprennandi í norskunni, þannig ég vonast til þess að þetta komi mjög snöggt."


Faðir Alexanders, Pálmi Rafn Pálmason, var leikmaður í Noregi og þar lærði Alexander að tala norsku.

„Gamli er með norskuna ennþá, hann gleymdi henni ekki eins og ég. Hann getur vonandi leiðbeint mér aðeins," segir Alexander.

Hvert er markmiðið úti?

„Ég ætla reyna komast sem fyrst upp í aðalliðið, án þess að vera drífa mig eitthvað, og svo verða lykilmaður þar. Draumurinn er svo að reyna komast í þessar efstu deildir (í heiminum) og reyna að blómstra þar."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Á leið til Danmerkur - „Ætla reyna komast sem fyrst upp í aðalliðið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Á leið til Danmerkur - „Ætla reyna komast sem fyrst upp í aðalliðið"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.