Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   fim 14. maí 2026 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sonurinn stuðningsmaður andstæðinganna - „Spenntur að sjá hvar hann verður í stúkunni"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA vann dramatískan sigur á Grindavík eftir vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær. Næsti leikur liðsins er á útivelli gegn nýliðum Þórs í Bestu deildinni á sunnudaginn.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, er uppalinn Þórsari og hlakkar mikið til að mæta sínum gömlu félögum. Hann sló á létta strengi þegar hann var spurður út í leikinn.

„Hluti af fjölskyldunni á heima á Akureyri. Yngsti sonur minn er hoppandi og skoppandi með stuðningsmannasveit Þórsara, ég bíð spenntur eftir að sjá hvar hann verður í stúkunni," sagði Lárus Orri.

Miklu var búist við af ÍA í sumar en liðið er aðeins með 5 stig eftir sex umferðir, stigi minna en Þórsarar. Liðin eru í 9. og 10. sæti.
Slapp
banner